Íbúum á Hrafnistuheimilunum í Reykjanesbæ, Nesvöllum og Hlévangi, bárust höfðinglegar gjafir frá Lionsklúbbi Njarðvíkur, Lionsklúbbnum Æsu, Lionsklúbbi Keflavíkur og Lionessuklúbbi Keflavíkur er þau komu færandi hendi með 4 spjaldtölvur ásamt heyrnartólum. Þessar gjafir koma sér mjög vel þar sem engar heimsóknir eru leyfðar til íbúa Hrafnistu á þessum fordæmalausu tímum og geta íbúar þá haft samskipti við og séð ættingja sína með því að nota myndsímtöl.
Gjafirnar eru strax komnar í notkun og gleðja íbúa jafnt sem aðstandendur. Við þökkum þessum velunnurum okkar innilega fyrir frábærar gjafir.