Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Dagdvöl á Hrafnistu Sléttuvegi

b_250_250_16777215_00_images_frettir_2019_Slettuvegur_front.jpeg

Tilkynning  til dagdvalargesta vegna COVID-19

Dagdvalir Hrafnistu eru opnar þeim dagdvalargestum sem kjósa að mæta. Gestir sem mæta eru nú flestir fullbólusettir og starfsfólk dagdvala og Hrafnistu er að ljúka seinni bólusetningu á næstu vikum. Stjórnendur dagdvala Hrafnistu fá upplýsingar um sóttvarnarreglur og breytingar á þeim frá neyðarstjórn Hrafnistu. Aðilar í neyðarstjórninni eru í samstarfshópi á vegum Almannavarna, sóttvarnarsviðs Embættis landlæknis og heilbrigðisráðuneytisins, en sá hópur hefur unnið að því að semja og uppfæra leiðbeiningar  til hjúkrunarheimila og dagdvala síðan COVID faraldurinn hófst.
Á Hrafnistu er farið eftir sóttvarnarreglum s.s. handþvotti, handsprittun og þrifum á snertiflötum og lögð er áhersla á það við dagdvalargesti og starfsmenn að koma alls ekki í dagdvölina ef viðkomandi er með minnstu einkenni sem gætu bent til COVID s.s. kvef, hita, hósta, hálsbólgu, slappleika, höfuðverk, beinverki, vöðvaverki eða einkenni frá meltingarvegi. Einnig hafa verið gerðar ráðstafanir með fjarlægð á milli gesta eins og hægt er, ásamt því að samgangur á milli dagdvala og hjúkrunarheimilis er ekki leyfður enn sem komið er. Þegar frekari breytingar verða á ofangreindum reglum verða þær upplýsingar settar inn á heimasíðu Hrafnistu.

Dagdvölin Röst á Hrafnistu Sléttuvegi er ætluð þeim sem eru 67 ára eða eldri og búa í Reykjavík. Opið verður alla virka daga milli kl. 08:00 - 16:00. Daggestir greiða ákveðið daggjald og akstur er í boði til og frá heimili.

Markmið dagdvalar er að viðhalda sjálfstæði einstaklingsins og rjúfa félagslega einangrun. Hrafnista Sléttuvegi hefur leyfi fyrir 30 rýmum í dagdvöl.

Deildarstjóri dagvalar á Hrafnistu Sléttuvegi er Bryndís Rut Logadóttir. Til að sækja um dagdvöl á Sléttuvegi þarf að fylla út þar til gerða umsókn og með henni er óskað eftir hjúkrunar/læknabréfi í gegnum Sögukerfið.

 

Umsókn um dagdvöl má nálgast hér.

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur