Í gær var pílukastkeppni haldin hátíðleg í Menningarsal Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði. Verðlaun voru veitt fyrir efstu 3 sætin auk þess sem stig fyrir árið 2019 voru tekin saman. Þau þrjú stigahæstu fengu sömuleiðis verðlaun. Það var góð mæting og mikið fjör eins og meðfylgjandi myndir sýna.