Þann 16. maí 2019 fagnaði hjúkrunarheimilið Skógarbær því að 22 ár eru frá því að heimilið tók til starfa. Í byrjun maí mánaðar tók Hrafnista formlega við rekstri hjúkrunarheimilisins.
Í tilefni dagsins voru haldnir afmælistónleikar þar sem Katrín Halldóra söngkona og Hjörtur Yngvi píanóleikari komu og fluttu helstu lög okkar ástsælu sönkonu Ellýjar Vilhjálms. Eftir tónleikana bauð Hrafnista upp á afmælisköku á hjúkrunardeildum og kaffisala fór að venju fram í félagsmiðstöðinni Árskógum.