Í gær var brugðið út af vananum og í stað hefðbundinnar helgistundar var haldin poppmessa þar sem hljómsveitin Silfursveiflan spilaði að einskærri snilld. Séra Svanhildur sá um helgihaldið. Þetta var einstaklega vel lukkuð stund og heimilisfólkið ánægt með framtakið.