Birna Jónasdóttir, starfsmaður í sjúkraþjálfun Hrafnistu Laugarási Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 35 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Birna, Ragnheiður Kristjánsdóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar og Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Laugarási.