Eyrún Pétursdóttir, deildarstjóri á Bylgjuhrauni Hrafnistu Hraunvangi Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Eyrún og Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi.