Sólveig Guðjónsdóttir, sjúkraliði sem starfar í Vinaþingi (dagdvöl) Hrafnistu Boðaþingi, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Sólveig og Lilja Kristjánsdóttir deildarstjóri dagdvalar Hrafnistu Boðaþingi í Kópavogi.