Íbúar, starfsfólk og gestir Hrafnistu fagna saman 100 ára fullveldi Íslands með hátíðardagskrá. Þjóðþekktir listamenn skemmta gestum í anda fullveldisársins 1918, í tali og tónum. Að dagskrá lokinni verður boðið upp á Fullveldiskökuna sem Landssamband bakarameistara hefur sett saman og byggir á vinsælum uppskriftum frá 1918.
Hátíðardagsskrá á Hrafnistu Nesvöllum verður haldin miðvikudaginn 18. júlí kl. 13:30 á Fögruvík. Íbúar og aðstandendur þeirra eru eindregið hvattir til að taka þátt.
Allir velkomnir!
Sjá nánar með því að smella hér.