Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Á Hrafnistuheimilunum leitast iðjuþjálfar og starfsmenn iðjuþjálfunar eftir því að starfa einstaklingsmiðað og hafa þarfir hvers og eins að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á hverju sinni. Þannig hefur þátttakan jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins. Iðjuþjálfar og starfsmenn iðjuþjálfunar sinna bæði einstaklingum og hópum með það að leiðarljósi að bæta andlega líðan, félagslega- og líkamlega færni einstaklingsins. 

Boðið er upp á þjálfun á færni til iðju á einstaklingsbundinn hátt, þannig að samspil sé á milli heimilismanns, iðjunnar og umhverfisins. Einstaklingsmeðferð sem og hópþjálfun er í boði á heimilinu á vegum iðjuþjálfunar en þar gefst einstaklingum tækifæri á að fást við ýmsa tómstundaiðju. Iðjuþjálfi sér einnig um að útvega og/eða  veita ráðgjöf varðandi hjálpartæki daglegs lífs. 
Samvinna við hjúkrunarfólk sjúkra- og iðjuþjálfun er mikil og unnið er í teymisvinnu að málefnum einstaklinga.
 
Deildarstjóri iðjuþjálfunar er Ester Gunnsteinsdóttir, ester.gunnsteinsdottir[hja]hrafnista.is 
 

 

 

     

 

 

 

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur