
NEYÐARSTJÓRN HRAFNISTU
Á Hrafnistu-heimilunum er starfandi sérstök Neyðarstjórn.
Markmið Neyðarstjórnar er að koma allri starfsemi Hrafnistu sem fyrst í eðlilegt horf við eða í kjölfar hættu- og/eða neyðarástands. Neyðarstjórn hefur jafnframt það hlutverk að stjórna aðgerðum innan heimilisins við slíkar aðstæður. Einnig stjórnar Neyðarstjórn öðrum verkefnum er varða viðbrögð við áfalli og tekur á öllu óvæntu sem upp getur komið tengdu starfsemi Hrafnistuheimilanna.
Í Neyðarstjórn sitja:
Formaður
Pétur Magnússon, forstjóri.
Hörður Kjartansson, deildarstjóri umsjón fasteigna
Að auki er forstöðumenn hvers Hrafnistuheimilis kallaðir inn í Neyðarstjórnina eftir þörfum:
Alma Birgisdóttir,Hrafnistu í Reykjavík
Sigrún Stefánsdóttir, forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði
Hrönn Ljótsdóttir, forstöðumaður Hrafnistu Kópavogi
Neyðarstjórn fundar reglulega, fer yfir stöðu mála og uppfærir upplýsingar og vinnuferla.
Neyðarstjórn hefur verið kölluð einu sinni saman á árinu 2008, utan reglubundinna funda. Það var hinn 29. maí þegar miklir jarðskjálftar gengu yfir Suðurland.
Síðasta vor stóð Neyðarstjórn fyrir námskeiði fyrir hluta stjórnenda Hrafnistuheimilanna um áfallastjórnun og fjölmiðlasamskipti. Námskeiðið var haldið í samvinnu við fyrirtækið Kynning og markað (KOM).
Ef þú þarft að ná sambandi við Neyðarstjórn Hrafnistu er best að hringja í skiptiborð Hrafnistu sem eru alltaf opin:
Hrafnista Reykjavík 585 9500
Hrafnista Hafnarfjörður 585 3000