Mannauðsstefna Hrafnistuheimilanna.Sem leiðandi aðila í þjónustu og umönnun aldraðra er stjórnendum Hrafnistu annt um velferð allra þeirra sem starfað er fyrir og með. Þekking, reynsla og ánægja starfsfólks Hrafnistu tryggir gæði þeirrar þjónustu sem veitt er og því leggur Hrafnista metnað sinn í að reyna að koma til móts við þarfir starfsfólks með eftirfarandi hætti:
Ráðningar og val
Val nýrra starfsmanna Hrafnistu tekur ávallt mið af hæfni, menntun og reynslu umsækjanda. Tryggja skal þann mannafla sem er nauðsynlegur hverju sinni. Starfsfólki er aldrei mismunað eftir kyni, aldri, kynþætti eða öðrum þáttum við ráðningu, í starfi eða öðrum samskiptum við Hrafnistu.
Starfsþroski
Störf við Hrafnistu skulu vera eftirsóknarverð. Boðið er upp á skapandi vinnuumhverfi sem stuðlar að því að hæfileikar hvers starfsmanns fái notið sín. Starfsfólk er hvatt til góðra verka, það nýtur góðs af virkri þátttöku og fær tækifæri til að vaxa og þroskast í starfi.
Skipulag
Stjórnskipulag Hrafnistu einkennist af stuttum og skýrum boðleiðum og starfað er samkvæmt samþykktu skipuriti og starfslýsingum, þannig að hver og einn þekkir hlutverk sitt og ábyrgðarsvið.
Símenntun
Starfsfólki er tryggð viðunandi þjálfun og kynning í upphafi nýs starfs. Starfsfólk fær tækifæri til að tileinka sér nýjar hugmyndir, tækni og aðferðir sem tengjast starfsvettvangi þess með markvissri símenntun og öflugu fræðslustarfi.
Vinnuumhverfi
Leitast er við að bjóða starfsfólki Hrafnistu upp á öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi sem uppfyllir grundvallarkröfur til vinnuverndar og vellíðunar.
Upplýsingamiðlun
Starfsemi Hrafnistu byggir á skilvirku upplýsingaflæði og stuðst er við möguleika upplýsingatækninnar í eins ríkum mæli og unnt er.
Þátttaka
Starfsfólk er hvatt til að taka virkan þátt í mótun starfsumhverfis Hrafnistu og eiga frumkvæði að umbótum. Lögð er áhersla á samvinnu starfshópa, opin samskipti og gagnkvæmt traust.
Meira