Innranet innskráning

Notendanafn:
Lykilorð:

Hlunnindi starfsfólks


Gaman saman
Hver deildarstjóri hefur kr. 4.000,- á stöðugildi til ráðstöfunnar vegna starfsmannamála.

Heilsurækt
Hrafnista styrkir starfsmenn um kr. 6.000,- til heilsuræktar.  Styrkurinn greiðist hjá starfsmanni í banka heimilanna.

Töðugjöld
Töðugjöld eru haldin að hausti fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra. Farið er út fyrir bæinn, grillað, sungið og dansað.

Starfsmannafélög
Hrafnista styrkir starfsmannafélögin verulega. Þar er eitthvað í gangi allan ársins hring. Má þar nefna gönguferðir, frítt í Laugarásbíó tvisvar á ári, jólabingó og jólamatur, árshátíð og fleira.

Sumarbústaðir
Hrafnistuheimilin eiga sumarbústaði með heitum potti, sem starfsmenn geta fengið leigða, jafnt sumar sem vetur.

Starfsafmæli
Starfsmenn eru heiðraðir fyrir starfsaldur hjá Hrafnistu, fyrst eftir þriggja ára starfsaldur og síðan á fimm ára fresti.

Eftir  3 ár: Konfektkassi
Eftir  5 ár: Leikhúsmiði fyrir tvo
Eftir 10 ár: Út að borða fyrir 20.000 kr.
Eftir 15 ár: Gjafabréf fyrir 25.000 kr
Eftir 20 ár: Gjafabréf fyrir 30.000 kr 
Eftir 25 ár: Gjafabréf fyrir 40.000 kr
Eftir 30 ár: Gjafabréf fyrir 55.000 kr
Eftir 35 ár: Gjafabréf fyrir  65.000 kr.
Eftir 40 ár: Utanlandsferð að upphæð 115.000 kr. eða vikudvöl á heilsuhælinu í Hveragerði

Menntun
Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna og boðið er upp á ýmis námskeið allt árið.


Meira

Hrafnista640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is