.

Gæðateymi Hrafnistuheimilanna

Gæðateymi Hrafnistu er þverfaglegt gæðateymi

Í gæðateymi eiga sæti  6 starfsmenn, tveir frá hjúkrunarsviði, tveir frá þjónustusviði og tveir frá rekstrar, stjórnunar og fjármálasviði. 

Verkefnastjóri fræðslu og sýkingavarna (frá hjúkrunarsviði) er formaður gæðateymis.

Formaður teymisins sér um ritun fundargerðar og eftirfylgni með verkefnum.

Hver einstaklingur situr í að minnsta kosti 2 ár í gæðateyminu, skipta skal út 2 aðilum á ári, nema formanni sem er viðvarandi í teyminu. 

Tilgangur gæðateymis

Með gæðateymi vill Hrafnista tryggja stöðugar umbætur í þjónustu við heimilisfólk og aðra sem heimilinu tengjast.

Markmið gæðateymis

Að efla faglegt starf innan Hrafnistu.

Viðhalda og efla fagþekkingu starfsmanna Hrafnistu.

Styðja frumkvæði stafsmanna í gæðastarfi.

Hlutverk gæðateymis

Er ákvörðunarhópur sem felur öðrum að vinna að gæðaverkefnum, hefur yfirsýn yfir þau gæðaverkefni sem eru í vinnslu á hverjum tíma og fylgir málum eftir.

Að gefa út gæðahandbók á allar deildir með það að markmiði að upplýsingar um verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar séu allar á sama stað og að auðvelt sé að nálgast þær.

Að fylgja eftir og hafa eftirlit með að gæðahandbók og verklagsreglur séu virtar og notaðar af stjórnendum og starfsfólki Hrafnistu.

Að vinna að stöðugum endurbótum á gæðaverkefnum.

Að miðla upplýsingum um gæðastarf Hrafnistu.

Að skipuleggja fræðslu starfsfólks vegna gæðamála.

Hvetja starfsfólk til að taka þátt í mótun gæðaverkefna um leið og fagþekking þeirra er efld.

 Starfsemi

Gæðateymi fundar  einu sinni í mánuði og oftar ef ástæða er til.

Gæðateymi gerir tillögur til framkvæmdastjórnar Hrafnistu að verkefnum og endurbótum, auk þess að vinna eftir tillögum frá framkvæmdastjórn.

Framkvæmdastjórn tilkynnir  formanni gæðateymis um skipan nýrra gæðahópa og hver áætluð lokadagsetning verkefnis er.

Formaður gæðateymis upplýsir framkvæmdastjórn í  september og febrúar um stöðu verkefna sem eru í gangi hverju sinni. 

Formaður gæðateymis skal við verklok senda  gæðaverkefni til samþykktar hjá framkvæmdastjórn áður en þau eru gefin formlega út í gæðahandbók.

Kynning á gæðaverkefni skal fara fram  í verklok.

 

Samþykkt af framkvæmdastjórn Hrafnistu janúar 2011

 

Leitarvél


Heimilin





 
 
Handverksvinnustofa
Hrafnistu Reykjavík
Sölusíða
 

Hrafnista Reykjavík640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is