Framtíðarsýn

Úr framtíðarsýn Hrafnistu


Stjórn Sjómannadagsráðs setur sér það sem framtíðarmarkmið að Hrafnista verði

          leiðandi aðili í þjónustu og umönnun aldraðra

Framtíðarsýnin byggir á uppbyggingu íbúða- og þjónustukjarna sem kemur til móts við sem flest þarfa- og þjónustustig fyrir aldraða. Hrafnista framtíðar mun verða fyrirtæki sem vinnur að umönnun og þjónustu við aldraða. Þessi fyrirtæki munu samnýta þjónustuþætti og rekstrarþætti.

Með þessari framtíðarsýn stefnir Hrafnista að því að víkka út og stækka markhóp sinn og fá á íbúða- og þjónustusvæði Hrafnistu aðila sem ekki eru ennþá komnir á það stig þjónustu að þurfa mikla ummönun og hjúkrunarþjónustu. Einnig er gert ráð fyrir að hópur sjálfborgandi aðila á svæðinu stækki.


Markvisst skal unnið að uppbyggingu jákvæðrar ímyndar um þá starfsemi og þjónustu sem innt er af hendi hjá Hrafnistu.


Meira

Hrafnista640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is