Úthlutunarreglur fyrir námskeiðsnefnd 2010
Námskeiðsnefnd er skipuð af framkvæmdastjórn Hrafnistu.
Í námskeiðsnefnd eiga sæti fræðslustjóri, fulltrúi starfsmanna, hjúkrunarforstjóri og mannauðsstjóri.
Umókn um leyfi/styrk skal berast viðkomandi yfirmanni sem þarf að gefa álit sitt og samþykkja. Yfirmaður skilar umsókninni til fræðslustjóra a.m.k. 7 dögum ÁÐUR en námskeið/leyfi/styrkur hefst.
Yfirmaður ber ábyrgð á að umsóknin sé rétt útfyllt, mikilvægt að fyllt sé út í alla reiti.
Ekki er heimilt að kalla út aukavaktir vegna námskeiða.
Starfsfólk í 60- 100 % starfi getur fengið allt að 40 þús. kr styrk vegna námskeiða, hámark styrkja annarra starfsmanna reiknast út frá starfshlutfalli dæmi: 30% = 20 þús.kr. Starfsfólk þarf að sækja um styrk til síns stéttarfélags ef það fær neitun þar mun Hrafnista greiða. Sýna þarf fram á svar frá viðkomandi stéttarfélagi áður en Hrafnista greiðir. Sé svarið jákvætt en viðkomandi getur aðeins fengið hluta kostnaðar hjá sínu stéttarfélagi þá mun Hrafnista borga mismuninn á námskeiðsgjaldi og því sem stéttarfélag leggur til (hámark 40. þús. kr.)
Starfsfólk í 30% starfi eða meira á rétt á 2 dögum á launum vegna námskeiða, skila þarf staðfestingu á mætingu til fræðslustjóra.
Umsóknir um námsleyfi á launum (lengra en 2 dagar) skal bera undir framkvæmdastjórn Hrafnistu.
Flokkun námskeiða
Námskeið tengd stéttarfélagi t.d. Fagnámskeið.
Þessi námskeið eru bæði almenn og sérhæfð fræðslunámskeið og gefa oft rétt á launaflokki. Aðeins starfsmenn sem hafa starfað í 6 mánuði eða lengur hjá Hrafnistu geta sótt um að fara á þessi námskeið.
Skyldunámskeið starfsmanna.
Þar sem því verður við komið skulu slík námskeið haldin á vinnutíma starfsmanna. Í þeim tilvikum þegar starfsmenn þurfa að sækja slík námskeið utan hefðbundins vinnutíma verða þeir á launum þann tíma. Yfirmenn ákveða hverjir skuli sækja slík námskeið í samráði við fræðslustjóra.
Starfsþróunarnámskeið.
Til þess að geta sótt um slík námskeið verður starfsmaður að hafa unnið samfellt í 1 ár eða lengur hjá Hrafnistu. Yfirmaður verður að rökstyðja hvernig námskeiðið nýtist viðkomandi starfsmanni / stofnun
Stutt námskeið / kynningar haldnar á Hrafnistuheimilunum.
Ekki gert ráð fyrir afleysingu né formlegri umsókn.
Starfsmaður fær leyfi til að sækja námskeiðið/kynninguna hjá sínum yfirmanni.
Ætlað öllum starfsmönnum Hrafnistu.
Á sumar þessar kynningar getur verið um skyldumætingu að ræða.
Umsóknareyðublað Hrafnistu um leyfi/styrk er á M-drifi undir ,,Fræðsla”, á heimasíðu Hrafnistu og á stjórnendasíðu Hrafnistu undir ,,Eyðublöð” og ,,Fræðsla”.
Námskeið/fræðsla á Hrafnistu getur nú verið metið til launahækkana
Framkvæmdastjórn hefur samþykkt að námskeið sem haldin eru á Hrafnistu má meta, eins og önnur námskeið sem starfsmenn sækja, til launahækkana. Eðlilega gildir þetta ekki um allt t.d. ekki kynningar á störfum/deildum Hrafnistu oþh.
Þetta á vonandi eftir að hvetja þá sem sjaldan koma á fræðslu til að mæta, og jafnvel toga þá aðeins upp í launum.
Framkvæmd:
Fræðslustjóri metur , í samráði við mannauðsstjóra fræðslu sem getur gefið launahækkun.
Hægt er að fá hækkun vegna kennslustunda (ks) skv. kjarasamningi Hrafnistu við viðeigandi stéttarfélag (t.d. starfsmenn Eflingar hafa 3 námskeiðsflokka, 60-120-200 ks. Sjúkraliðar hafa 2 námskeiðsflokka 120 – 200 ks).
20 – 60 mín fræðsla jafngildir einni kennslustund.
Dæmi: Sá sem situr alla fyrirlestra á Ráðstefnudegi Hrafnistu gæti þá mögulega fengið 10 ks (10 fyrirlestrar 20 mín hver)
Fjöldi kennslustunda vegna lengri námskeiða verður metið í hverju tilfelli fyrir sig.
Námskeiðin verða auglýst þannig að fram komi fjöldi kennslustunda.
Fræðslustjóri gefur út viðukenningarskjal með staðfestingu á að starfsmaður hafi lokið viðkomandi námskeiði og fjölda ks. í lok fræðslu.