Ættingjabandið Ættingja- og vinasamband heimilisfólks á Hrafnistu í Reykjavík var stofnað 16. mars 1998. Markmið Ættingjabandsins eins og sambandið er daglega kallað er að stuðla að vellíðan heimilisfólksins á sem flestan hátt. Þess má geta að allir sem eiga ættingja og eða vini á Hrafnistu eru sjálfkrafa meðlimir sambandsins. Meðlimir Ættingjabandsins greiða engin félagsgjöld. Þess má geta að fólk af öllum stéttum, hvaðanæva af landinu hefur eytt ævikvöldinu á Hrafnistu.
Ættingjabandið stendur árlega fyrir ýmsum uppákomum s.s. aðventukvöld og skemmti- og fræðslukvöld fyrir heimilisfólk og gesti. Sérstök skemmtidagskrá einnig reglulega sett upp fyrir þá sem dvelja á sjúkradeildum og
Meira