
Iðjuþjálfun á Hrafnistu 2010
Iðjuþjálfar Hrafnistu starfa undir félags- og þjónustusviði og er framkvæmdarstjóri sviðsins Soffía Egilsdóttir, félagsráðgjafi. Markmið iðjuþjálfa er að efla færni einstaklinga og viðhalda þátttöku þeirra í því sem skiptir þá máli og bjóða uppá fjölbreytta þjónustu svo flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi og innan síns áhugasviðs. Til þess notast iðjuþjálfa við m.a. fræðslu, ráðgjöf, hjálpartæki og þjálfun.
Manneskjunni er mikilvægt að stunda þá iðju sem hún hefur áhuga á og hefur það jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins. Leitast er við að vinna einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á. Iðjuþjálfar sinna bæði einstaklingum og hópum með það að leiðarljósi að bæta andlega líðan, félagslega og líkamlega hæfni einstaklingsins.
Þegar einstaklingur veikist eða eldist er algengt að röskun verði á daglegri iðju hans. Skert sjálfsbjargargeta getur haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd og dregið úr frumkvæði til þátttöku í afþreyingum og tómstundum. Iðjuþjálfar leitast við að virkja einstaklinginn þannig að hann geti öðlast lífsfyllingu þrátt fyrir sjúkdóma, öldrun eða fötlun. Áhersla er lögð á að aldraðir fái tækifæri til þátttöku með því að aðlaga umhverfið, afþreyinguna eða með því að veita endurhæfingu í gegnum þá tómstundaiðju sem þeir hafa áhuga á. Boðið er upp á þjálfun á færni til iðju á einstaklingsbundinn hátt, þannig að samspil sé milli íbúans, iðjunnar og umhverfisins
Boðið er upp á þjálfun á færni til iðju á einstaklingsbundinn hátt, þannig að samspil sé milli íbúans, iðjunnar og umhverfisins. Einstaklingsmeðferð sem og hópaþjálfun er í boði á vinnustofu á vegum iðjuþjálfunar. Þar gefst einstaklingnum möguleiki á að fást við ýmsar handíðir s.s. prjónaskap, málun á efni, myndvefnað, leirvinnu og myndlist.
Deildarstjóri iðjuþjálfunar og félagsstarfs sér almennt um skipulag félagsstarfsins, s.s. fasta dagskrá félagsstarfsins, sérstaka viðburði sem fara fram á heimilinu, fræðslu fyrir heimilisfólk, ferðir utan heimilisins og annað tilfallandi. Þar sem eitt af verksviðum iðjuþjálfa er að meta hvernig möguleikar einstaklingsins er til þátttöku út frá mismunandi atriðum, s.s. líkamlegu úthaldi, hjálpartækjanotkun og aðgengi á viðkomustaðnum út frá þörfum þátttakenda í ferðinni.
Störf iðjuþjálfa á heimilunum:
Dagþjálfun í Reykjavík
Deildarstjóri er iðjuþjálfi og þar fer fram endurhæfing eldri borgara. Markmið dagþjálfunar er að einstaklingur eflist í sínu daglega lífi. Þá er beint sjónum að eflingu viljans, áhugahvatar, trúar á eigin áhrifamátt og getu til eigin umsjár.
Deild iðjuþjálfunar og félagsstarfs Hrafnistu í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík:
Deildarstjóri er iðjuþjálfi og skiptist deildin eftirfarandi: iðjuþjálfun, almennt félagsstarf og félagsstarf á hjúkrunardeildum á vegum iðjuþjálfunar, almenna vinnustofu og vinnustofu á vegum iðjuþjálfunar ásamt listmeðferð.
Í dag starfa fimm iðjuþjálfar á heimilum Hrafnistu:
Ø ÍÍ Hafnarfirði starfa Guðrún Hallgrímsdóttir, deildarstjóri iðjuþjálfunar og félagsstarfs í 100% stöðu og Ólafía Helga Arnardóttir, iðjuþjálfi í Hafnarfirði í 50% stöðu
- --Í Reykjavík starfa Sigurbjörg Hannesdóttir, deildarstjóri iðjuþjálfunar og félagsstarfs í 70% stöðu og Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi í 80% stöðu.
- -Guðrún Dadda Ásmundardóttir, deildarstjóri dagþjálfun í Reykjavík í 100% stöðu
Ø Í Í Kópavogi starfar Sigurbjörg Hannesdóttir, iðjuþjálfi í 30 % stöðu.