Hjúkrun
Á Hrafnistu starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og starfsfólk við hjúkrun og umönnun allan sólarhringinn.
Markmið hjúkrunar eru að:
- veita hjúkrun og umönnun eftir þörfum hvers og eins
- styrkja heimilisfólk til sjálfshjálpar
- auðvelda heimilisfólki að aðlagast breyttum aðstæðum
- tryggja vellíðan og öryggi heimilismanna
- standa vörð um sjálfsímynd þeirra og sjálfsvirðingu
- efla samvinnu og stuðning við fjölskyldur heimilisfólks
- stuðla að ánægjulegu ævikvöldi