Innranet innskráning

Notendanafn:
Lykilorð:

Þjónusta

Íbúar Hrafnistu
Hrafnistuheimilin eru hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða. Jafnframt er starfrækt dægradvöl á Hrafnistu í Hafnarfirði.

Á lóðum heimilanna eru 26 raðhús í Reykjavík og 56 í Hafnarfirði, auk 39 íbúða í fjölbýlishúsi við Kleppsveg 62 í Reykjavík. Íbúar í þessu húsnæði, sem er í einkaeign, geta sótt ýmsa þjónustu til Hrafnistu og eru með neyðarhnappa tengda Hrafnistu.

Á Hrafnistu í Reykjavík búa 322 heimilismenn og eru 209 á dvalarheimili en 113 á fimm hjúkrunardeildum.
Á Hrafnistu í Hafnarfirði búa 227 heimilismenn þar af eru 141 á dvalarheimili en 86 eru á þremur hjúkrunardeildum. Í dægradvöl í Hafnarfirði eru 26 pláss sem um 46 einstaklingar nýta 2-5 daga í viku.

Þess má geta að á Hrafnistu í Reykjavík bjuggu um 450 manns þegar flest var, en í tímans rás hafa kröfur aukist um meira rými og betri aðstöðu fyrir heimilismenn og starfsfólk. Af þeim sökum hafa verið gerðar breytingar og endurbætur á húsnæði Hrafnistu.

Vernduð eining fyrir minnissjúka heimilismenn er á báðum heimilum. Að auki eru í Reykjavík 5 rými fyrir heyrnarlausa eða heyrnarskerta heimilismenn, sem nota táknmál við tjáskipti.


Hlífð, vernduð eining fyrir minnissjúka á Hrafnistu Hafnarfirði.

Samskiptafulltrúi

Önnur þjónusta

Eldhús
Í eldhúsi Hrafnistuheimilanna er matreiddur hollur og fjölbreyttur matur í samræmi við næringarstefnu Hrafnistu. Allt sérfæði sem þörf er á er eldað á Hrafnistu og leitast er við að maturinn henti sem flestum. Matseðillinn er saminn í samráði við næringarfræðing.

Prestur sér um helgistundir og guðþjónustur. Einnig annast prestur sálgæslu fyrir einstaklinga og starfsfólk.

Þvottahús er starfsrækt á Hrafnistuheimilunum. Þar er þvegið allt lín heimilisins og persónulegur fatnaður heimilisfólks.

Iðnaðarmenn starfa við Hrafnistu og sinna endurbótum og viðhaldsþjónustu.

Ýmis önnur þjónusta er til staðar eins og:

  • hárgreiðsla
  • fótaaðgerð og -snyrting
  • bókasafn
  • verslun
  • bankaafgreiðsla
  • saumastofa
  • fræðslustarf fyrir starfsfólk, heimilisfólk og aðstandendur.

Meira

Hrafnista640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is