Skipulagsskrá
fyrir Minningarsjóð Hrafnistu.

1.gr.
Heiti sjóðsins er „Minningarsjóður Hrafnistu“, og er í eigu Hrafnistuheimilanna.
Heimili sjóðsins er í Reykjavík.

2.gr.
Markmið sjóðsins er að bæta og styrkja félagsstarf og afþreyingu heimilismanna Hrafnistuheimilanna.
 
3. gr.
Tekjur sjóðsins er fjármagn af sölu minningarkort Hrafnistu, ásamt fjármagnstekjum af innstæðum sjóðsins (vextir og verðbætur).

4.gr.
Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur fulltrúum. Einum tilnefndum af Sjómannadagsráði og er hann jafnframt formaður stjórnar og tveimur tilnefndum af Hrafnistu.

5. gr.

Starfsmönnum Hrafnistu er heimilt að sækja um styrki úr sjóðnum til ákveðinna verkefna sem falla að markmiði sjóðsins. Með umsókn skal fylgja stutt greinargerð um hvernig styrkurinn muni nýtast starfsemi Hrafnistu.

6.gr.
Styrkjum úr sjóðnum skal úthlutað árlega, þó er sjóðstjórn heimilt að úthluta oftar eða sjaldnar eftir fjárhagsstöðu sjóðsins.

7.gr.
Stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni hvernig auglýsingum um umsóknir vegna styrkja úr sjóðnum er háttað. Stjórn sjóðsins getur ennfremur ákveðið styrk til verkefnis án þess að það hafi verið auglýst.
Við ákvarðanir innan sjóðsins m.a um úthlutanir ræður einfaldur meirihluti stjórnarmanna.

8.gr.
Sjóðinn* skal varðveita og ávaxta á bankareikningum á eins öruggan hátt og kostur er. Leitast skal við að fá hæstu mögulega ávöxtum á hverjum tíma.

9.gr.
Fjármálastjóri Hrafnistu skal annast vörslu sjóðsins og vera prókúruhafi bankareikninga hans.

10.gr.
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið.
 
Þannig samþykkt á stjórnarfundi Sjómannadagsráðs 15. febrúar 2011.


Hrafnista640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is