fraeðslubæklingur-haust-2011 
Innranet innskráning

Notendanafn:
Lykilorð:

Föstudagsmolar- Gestaskrifari er Sigurbjörg Hannesdóttir, iðjuþjálfi.

Ég var að kynnast nýju verkfæri í náminu mínu sem mig langar til að kynna fyrir ykkur.  Verkfærið heitir "Lífsspeki fisksins" og er frábært  til að nota í eigin lífi, á góðum og erfiðum tímum.

Lífsspeki fisksins er mjög einföld og engin ný sannindi. En er mjög lesendavæn og minnir okkar á  grundvallaratriðin  í okkar lífi.  Spekin á upptök sín í fiskbúð í Seattle , Bandaríkjunum, þar sem fisksalar ákváðu að finna sér leið til þess að létta sér störfin þar sem maður þarf að mæta eldsnemma og vera  í slori allan daginn.

 Í stuttu máli er sagan þannig að kvikmyndatökumaður gekk í þungum þönkum fram hjá fiskbúðinni Pike Place. Hann  var að velta fyrir sér lausn á erfiðu viðfangsefni en veitti því eftirtekt að innan úr fiskbúðinni bárust hlátursköst. Hann leit því inn í búðina og virti fyrir sér það sem fram fór. Fisksalarnir afgreiddu viðskiptavini sína með óvenjulegri glaðværð og umhyggjusemi. Þegar nánar var skoðað höfðu þeir ákveðið að þrátt fyrir mjög langan vinnudag, bleytu og stundum kulda ætluðu þeir að sinna vinnu sinni þannig að þeir sjálfir hefðu gaman af og viðskiptavinirnir nytu úrvalsþjónustu. Til að gera langa sögu stutta festi myndatökumaðurinn, John Christensen, fiskbúðina á filmu, útfærði aðferðafræðina frekar og gaf út sem kennslumyndband.

Sjá nánar:

 

FÖSTUDAGSMOLAR FORSTJÓRA
Föstudaginn 27. janúar 2012 Dagvistun okkar í Kópavogi opnar á hlaupársdag! Í dag skrifuðum við undir samning við Kópavogsbæ rekstur og starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar í Boðaþingi, sem m.a. felur í sér að tekin verða í notkun þrjátíu ný dagvistarúrræði fyrir aldraða
Meira
Föstudagsmolar 20. janúar 2012
Uppruni Hrafnistuheimilanna og merk tímamót í sögu Sjómannadagsráðs Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Á þessu ári eða nánar tiltekið 25. nóv. n.k. verða liðin 75 ár frá stofnun Sjómannadagsráðs. Það voru stéttarfélög sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði sem stofnuðu samtökin að frumkvæði Henrys Hálfdanssonar loftskeytamanns. Í fyrstu var
Meira
FÖSTUDAGSMOLAR FORSTJÓRA
Föstudaginn 13. janúar 2012 Hrafnista í fjölmiðlum – hvar er verjusjálfsalinn á Hrafnistu? Hér á Hrafnistu er rekin fjölbreytt starfsemi og jafnan mikið að gerast. Þetta má helst sjá á fréttum starfseminnar á heimasíðu okkar en margir verða agndofa yfir
Meira
FÖSTUDAGSMOLAR FORSTJÓRA
Föstudaginn 9. janúar 2012 Jólin að klárast í dag Enn einu sinni er þrettándi dagur jóla runninn upp sem þýðir að jólin eru enn einu sinni að klárast. Hér á Hrafnistuheimilunum get ég ekki betur séð en flestir komi vel
Meira
FÖSTUDAGSMOLAR FORSTJÓRA
Föstudaginn 23. desember 2011 Ágæta samstarfsfólk á Hrafnistu, Ég vil nota þetta tækifæri og óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég vona að þið eigið öll ánægjulegar stundir um hátíðarnar í
Meira
FÖSTUDAGSMOLAR FORSTJÓRA
Föstudaginn 9. desember 2011 Jólagjafir Hrafnistu 2011 Í samvinnu við forstöðumenn hefur framkvæmdastjórn Hrafnistu nú ákveðið að starfsfólk okkar fái veglegar jólagjafir frá Hrafnistu þessi jólin, en flestar heilbrigðisstofnanir landsins hafa alfarið skorið þennan þátt niður eða minnkað hann verulega.
Meira


Hrafnista640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is