Innranet innskráning

Notendanafn:
Lykilorð:

21. júlí 2010
Boðið í bíó.
Hrafnista býður heimilismönnum Hrafnistu í Reykjavík í Laugarásbíó föstudaginn 23. júlí kl. 13:00 að sjá myndina Mamma Gógó. Leikstjóri myndarinnar er Friðrik Þór Friðriksson.   Myndin segir af Gógó, fullorðinni konu sem greinist með Alzheimer. Á sama tíma og Gógó berst við sjúkdóminn er sonur hennar í fjárhagskröggum vegna nýjustu kvikmyndar sinnar, "Börn náttúrunnar", sem enginn hefur áhuga á að sjá í kvikmyndahúsum landsins.   Þeir sem ætla að nýta sér þetta frábæra  boð mæti í aðalanddyri kl. 12:45.
Til baka Prentvæn útgáfa

Hrafnista640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is