fraeðslubæklingur-haust-2011 
Innranet innskráning

Notendanafn:
Lykilorð:

17. apríl 2012 Næring og vökvajafnvægi
. Námskeiðið, sem ætlað er öllum heilbrigðisstéttum, verður boðið í fjarfundi utan höfuðborgarsvæðis ef næg þátttaka fæst. Skráningarfrestur er til 10. apríl 2012. Rannsóknir síðustu ára hafa greint frá hárri tíðni vannæringar meðal sjúklinga á sjúkrahúsum og á hjúkrunarheimilum. Vannæring og þ.m.t vökvaskortur veldur hægari bata, minnkaðri sjálfsbjargargetu, auknum streituviðbrögðum, aukinni tíðni á legusárum og eykur hættu á sýkingum. Síðast en ekki síst minnkar vannæring lífsgæði þeirra sem fyrir verður. Það að borða hefur bæði félagslega og menningarlega þýðingu fyrir manneskjuna. Nauðsynlegt er að taka á þessu vandamáli og fyrirbyggja vannæringu. --> Kennsla / umsjón: Umsjón:Marianne Elisabeth Klinke og Jónina H. Hafliðadóttir, hjúkrunarfræðingar á Landspítala háskólasjúkrahúsi, Fossvogi. Sérfræðingar frá ýmsum fagstéttum munu koma að námskeiðinu Hvenær: Þri.17. apríl 2012 kl. 8:15 -16:15 Flokkur: Heilbrigðis- og félagssvið Námskeiðsnúmer: 194v12 --> Verð: 18.500 kr.
Meira
16. febrúar. Erfið starfsmannamál.
Fimmtudaginn 16. febrúar kl. 8.30-16.30 stendur Þekkingarmiðlun fyrir námskeiðinu Erfið starfsmannamál . Leiðbeinandi er Eyþór Eðvarðsson , M.A. í vinnusálfræði, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Erfið starfsmannamál Það eru nokkur stjórnunarleg verkefni sem flestir stjórnendur eiga í erfiðleikum með að framkvæma. Annað þeirra er að ræða ófullnægjandi frammistöðu við starfsmenn og hitt er að færa slæm tíðindi eins og þegar starfsmaður fær ekki stöðuhækkun eða er sagt upp störfum. Bæði verkefnin vekja upp miklar viðkvæmar tilfinningar hjá viðmælandanum og reyna á stjórnunarfærni stjórnandans. Að ræða ófullnægjandi frammistöðu Markmið leiðréttingarviðtala er að bæta frammistöðu. Árangur viðtalsins ræðst af því hvað starfsmaðurinn gerir þegar samtalinu lýkur og því er mikilvægt að tryggja samþykki og samvinnu starfsmannsins. Fara þarf á sérstakan hátt inn í slík mál og gæta að virðingu og stolti. Einnig verður stjórnandinn að sýna festu, skilning og sveigjanleika. Góð leiðréttingarviðtöl fara í gegnum níu skref, frá því að tilkynna hvað það er sem þurfi að laga og þangað til lýst er yfir trú á að viðkomandi muni ná árangri. Að færa slæm tíðindi eins og
Meira
23. feb. 2012 Parkinsonveiki, vitrænar breytingar og úrlausnir
Fræðslufundir á vegum rannsóknarstofu HÍ og LSH í öldrunarfræðum – RHLÖ Haldnir í kennslusalnum 7. hæð á Landakoti á fimmtudögum kl. 14:45-15:45 Margrét Sigurðardóttir, iðjuþjálfi á Reykjalundi
Meira
20. mars. Samskiptahæfni og upplýsingamiðlun
Samskiptahæfni og upplýsingamiðlun Fjallað er um virka hlustun sem stjórntæki sem auðveldar stjórnendum að hlusta og sýna samstarfsfólki sínu skilning og virðingu. Enn fremur er farið yfir á hvaða hátt orðaval, líkamstjáning, og tilfinningar stjórnenda geta haft áhrif á upplifun samstarfsfólks á sameiginlegum samskiptum. Fjallað er um möguleg viðbrögð stjórnenda við erfiðum samskiptum sem byggja t.d. á kröfum sem erfitt er að koma til móts við. Komið er inn á lausnamiðuð samskipti þar sem lögð er áhersla á að fólk einblíni ekki á orsök vandamála heldur finni leiðir til jákvæðs og raunsæs árangurs. Enn fremur er fjallað á hagnýtan hátt um samhengi líkams- og raddbeitingar, tilfinninga og framkomu og tengingu þess við samskipti almennt. Skráningarfrestur er til 13. mars Kennarar: Steinunn Inga Stefánsdóttir, M.Sc. í viðskiptasálfræði og streitufræðum, og Hlín Agnarsdóttir, leiklistarkennari, leikstjóri og höfundur. Tími: Þri. og fim. 20., 22. og 27. mars kl. 9:00 - 12:00 (3x) Verð: 33.300 kr. Staður: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7 Nánari lýsing og skráning hér
Meira


Hrafnista640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is