Skammtímarými

Samkvæmt samningi Hrafnistu og Heilbrigðisráðuneytisins  eru rekin 18 endurhæfingarrými og 30 dagþjálfunarrými  á Hrafnistu í Reykjavík. Fer inntaka í gegnum samráðshóp sem er skipaður af fulltrúa Hrafnistu, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, LSH og Heimaþjónustu Reykjavíkur.  

Markmiðið með endurhæfingarrýmunum er að viðkomandi eflist á sál og líkama og viðhaldi þeirri öryggistilfinningu og færni sem nauðsynleg er til að búa áfram í eigin húsnæði.  Líkamleg þjálfun felst í sjúkraþjálfun, bæði einstaklings- og hópaþjálfun, en einnig sinna íþróttafræðingar hóptímum í leikfimi og sundi ásamt öðrum íþróttum.  Auk líkamlegrar þjálfunar taka gestir þátt í daglegu lífi á Hrafnistu. ( sjá stundakrá).

Á  Hrafnistu í Reykjavík eru síðan 16 hvíldarrými og Hrafnistu í Hafnarfirði 10 rými. Hvíldarrými er ætluð öldruðum sem búa heima en þurfa á skammtímadvöl að halda og til að létta undir með þeim sem styðja við búsetu heima.

Ef óskað er eftir dvöl þá vinsamlegast hafið samband við heimilislækni viðkomandi eða starfsfólk heimahjúkrunar.

Ef einstaklingur er inniliggjandi á LSH þá hefur útskriftateymi LSH með umsóknir að gera.

Umsóknum skal skilað  til Margrétar Albertsdóttur félagsráðgjafa á eyðublöðum sem eru á vef Hrafnistu, www.hrafnista.is með umsóknum skal fylgja hjúkrunar- og læknabréf.

Nánari upplýsingar Margrét Albertsdóttir félagsráðgjafi Hrafnistu, sími 5859500,
netfang; margret.albertsdottir@hrafnista.is

      

Símatími:  Alla virka daga   frá kl. 9:30-10:30

Umsókn um skammtímavistun Hrafnistu í Reykjavík:

Velkomin í hvíldarinnlögn á Hrafnistu Reykjavík

Umsókn um hvíldarinnlögn Hrafnistu Hafnarfirði

Velkomin í hvíldarinnlögn á Hrafnistu Hafnarfirði

Upplýsingar fyrir fagfólk:


      

Leitarvél


Heimilin





 
 
Handverksvinnustofa
Hrafnistu Reykjavík
Sölusíða
 

Hrafnista Reykjavík640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is