Iðjuþjálfun
Iðja er öllum nauðsynleg og frá örófi alda hefur líf mannsins einkennst af þörf hans til að stunda iðju af margvíslegu tagi.
Iðja er allt það sem fólk innir af hendi í daglegu lífi í þeim tilgangi að annast sig og sína, vinna ýmis störf er nýtast samfélaginu og njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Dæmi um iðju:
Þessi viðfangsefni virðast sjálfsögð og einföld fyrir flesta en geta verið erfið og jafnvel óyfirstíganleg fyrir fólk sem hefur fengið sjúkdóma, hefur ekki þroskast eðlilega, er komið á efri ár eða hefur orðið fyrir áföllum af einhverju tagi.
Reynslan sýnir að ef fólk lendir í þeim aðstæðum að geta ekki sinnt þeirri iðju sem er því mikilvæg, þá hefur það neikvæð áhrif á heilsu þess og líðan, auk þess sem það dregur úr frumkvæði.
Iðjuþjálfun felst í því að nota markvissa íhlutun til að efla færni hvers og eins. Dæmi:
Ávallt er um að ræða samvinnu milli einstaklingsins og iðjuþjálfans. Haft er að leiðarljósi að einstaklingurinn haldi í trúna á eigin áhrifamátt og hafi kost á að stunda þá iðju sem hefur gildi og þýðingu fyrir hann.
Sigurbjörg Hannesdóttir er starfandi iðjuþjálfi á Hrafnistu Reykjavík.