.

Hvíldarinnlögn

Á Hrafnistu í Reykjavík eru  16 hvíldarrými.

Hvíldarinnlögn er liður í að viðhalda lífsgæðum einstaklings sem og stuðningur og ráðgjöf  við aðstandendur.

Áhersla er lögð á styrkingu líkamlegra, andlegra og félagslegra þátta.

Á meðan á dvöl stendur nýtur hvíldargestur allrar almennrar þjónustu sem Hrafnista hefur upp á að bjóða ásamt því að taka þátt í félagsstarfi og þeim  viðburðum sem í boði eru.

Hvíldarinnlögn getur varað í allt að sex vikum, allt eftir óskum og þörfum hvers og eins.

Möguleiki er á hvíldarinnlögn oftar en einu sinni á ári.

Ef óskað er eftir dvöl þá vinsamlegast hafið samband við viðkomandi heimilislækni eða starfsfólk heimahjúkrunar.

Ef einstaklingur er inniliggjandi á LSH þá hefur útskriftarteymi LSH með umsóknir að gera.  

Deildarstjóri er Unnur G Guðmundsdóttir  unnur.gudmundsdottir@hrafnista.is

Aðstoðardeildarstjóri er Hildur Ólafsdóttir  hildur.olafsdottir@hrafnista.is

Hjúkrunarfræðingur á vakt er í síma 585 9445 / 693 9544

Yfirlæknir er Pétur Thorsteinsson

Leitarvél


Heimilin





 
 
Handverksvinnustofa
Hrafnistu Reykjavík
Sölusíða
 

Hrafnista Reykjavík640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is