Sjúkraþjálfun á Hrafnistu Kópavogi
Markmið sjúkraþjálfunar á Hrafnistu Kópavogi er að auka lífsgæði heimilismanna með aðferðum sjúkraþjálfunar, til dæmis að minnka verki, auka hreyfanleika og viðhalda færni eins og hægt er. Lögð er áhersla á sjálfræði og virðingu fyrir hverjum einstakling og reynt að hvetja til athafna sem viðkomandi hefur áhuga á og hefur gildi fyrir hann.
Verkefni sjúkraþjálfunar á Hrafnistu Kópavogi eru margvísleg en fyrir utan einstaklingsmeðferðir eru bocciaklúbbur og gönguklúbbur starfandi. Einu sinni í viku er síðan boðið upp á hópleikfimitíma og dans.
Starfsmenn sjúkraþjálfunar sjá um öll hjálpartæki heimilismanna og útvegun á þeim. Í því sambandi er áhersla lögð á að hjálpartækin nýtist viðkomandi sem best og gætt sé að sjálfsvirðingu og reisn einstaklingsins
Samvinna við hjúkrunarfólk og iðjuþjálfun er mikil og unnið er í teymisvinnu að málefnum einstaklinga. Ávallt er reynt að kynna sér allar nýjungar í öldrunargeiranum og innleiða það sem þykir henta okkar heimilisfólki. Að sama skapi er reynt að hafa tækjakost deildarinnar eins og best verður á kosið á hverjum tíma.