Læknisþjónusta

Læknir kemur á heimilið tvisvar í viku og  auk þess sem læknir er á bakvakt allan sólarhringinn.

Læknar Hrafnistu ákveða lyfjagjafir og rannsóknir. 

Sérhæfð læknis- og stoðþjónusta er veitt eftir því sem við á, öll slík þjónusta fer í gegnum lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara eða iðjuþjálfa heimilisins.

Markmið læknisþjónustunnar er að:
Stuðla að sem bestri  líkamlegri og andlegri heilsu heimilismanna

Megin áhersla er lögð á að auka færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklingsins eftir leiðum læknisfræðinnar.


Hrafnista Kópavogi480210-2040Aðalsími 531 4000Fax 531 4009Boðaþingi 5-7203 Kópavogihrafnista@hrafnista.is