Manneskjunni er mikilvægt að stunda þá iðju sem hún hefur áhuga á og það hefur jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins. Leitast er við að vinna einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á. Iðjuþjálfar sinna bæði einstaklingum og hópum með það að leiðarljósi að bæta andlega líðan, félagslega og líkamlega hæfni einstaklingsins.
Aðalverksvið iðjuþjálfunar er:
Sólskinsklúbbur Hrafnistu Kópavogi.
Í Sólskinsklúbbnum er unnið út frá hugmyndarfræði sem heitir Spark of life/ Lífsneistinn. Höfundur þessarar hugmyndafræði heitir Jane Verity og er iðjuþjálfi. Sólskinsklúbburinn er ætlaður heimilismönnum með heilabilun þar sem þeim er kleift að vaxa og dafna, sama á hvaða stigi sjúkdómurinn er.
Unnið er í samstarfi við listmeðferðarfræðing.
Söfnun æviágripa heimilismanna
Svokölluð lífssaga er ómetanlegur stuðningur fyrir þá umönnunaraðila sem vinna með einstaklingi með tjáningarerfiðleika eða minnisskerðingu. Starfsfólk á þá auðveldara með að styðja hvern og einn við að rifja upp ánægjulega og/eða mikilvæga atburði úr eigin lífi og styrkja með því sjálfsmynd og sjálfsöryggi einstaklingsins og bæta líðan hans.
Umsjón yfir hópastarfi á vegum iðjuþjálfunar
Handverkshópur
Listmeðferð
Minningarstarf
Samstarf við til dæmis:
Leikskóla og frístundarheimili Kópavogs
Rauða krossinn
Umsjón hjálpartækja og þjálfun í samstarfi við sjúkraþjálfara
Fræðslu og öðrum tilfallandi verkefnum.