.

Hugmyndafræði Hrafnistu í Kópvogi

Við hönnun og uppbyggingu Hrafnistu í Kópavogi er mikið horft til danskrar hugmyndarfræði sem nefnist Lev og bo og leggur áherslu á sjálfstæði, sjálfræði og styrkleika heimilismanna.
Að sjálfsögðu kom áratuga löng reynsla og þekking starfsmanna Hrafnistuheimilanna sér líka vel við skipulagninguna, leitað var í smiðju Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra, einnig voru önnur öldrunarheimili á Íslandi skoðuð svo og rannsóknir og kenningar í öldrunarfræðum.

Á Hrafnistu í Kópavogi eru 4 deildar með 11 heimilismönnum hver. Til að draga úr stofnanayfirbragði klæðast starfsmenn ekki einkennisfatnaði. Þá eru hjálpartæki, aðhlynningavagnar og körfur undir óhreint tau að öllu jöfnu staðsett á herbergjum heimilismanna til að yfirbragð deildarinnar, hins sameiginlega rýmis, sé sem heimilislegast. Hjarta hverrar deildar eru eldhúsið og borðstofan, þar sem íbúar og starfsmenn borða saman við stórt borðstofuborð, rétt eins og á venjulegu heimili. Eldhúsin eru opin og öllum heimill þar aðgangur. Morgunmatur er ekki á fyrirfram ákveðnum tíma, heldur getur verið á tímabilinu frá klukkan sex til ellefu. Þó að hádegismaturinn komi tilbúinn frá eldhúsi Hrafnistu í Reykjavík, er hann borinn fram á fötum þannig að hver og einn geti fengið sér að borða í samræmi við eigin óskir. Á kvöldin nokkrum sinnum í viku er eldaður einfaldur matur og þá gjarnan í samráði við heimilismenn.

Hvert einkarými er um 35 fermetrar. Það samanstendur af sameiginlegu svefnherbergi og stofu auk baðherbergis og eldhúskrók, þar sem er innrétting með ísskáp og vaski. Tveir gluggar eru í hverju herbergi, annar stór og hinn minni, og eru herbergin því bæði björt og afar skemmtileg. Til að gera herbergin sem heimilislegust kemur heimilisfólk með eigin gardínur, eigin rúmföt og handklæði. Margir möguleikar eru á uppröðun húsgagna í herbergjunum og eru t.d. fataskápar á hjólum þannig að unnt sé að færa þá til tilbreytingar. Á hverri deild eru þrjú herbergi sem unnt er að opna á milli til að gera hjónum kleift að búa í samliggjandi herbergjum. Þvottahús eru á hverri deild.

Hugmyndafræði Lev og bo kemur fram í mörgum þáttum í hönnun húsnæðisins í Kópavogi, hún birtist m.a. í því að stoðeiningar heimilisins, s.s. starfsmannaaðstaða, aðstaða fyrir félagsstarf, dagvistun, iðjuþjálfun og endurhæfingu ásamt ýmsu fleiru í starfsemi hjúkrunarheimila, eru ekki staðsettar á sjálfu heimilinu, heldur í  þjónustumiðstöð sem er í sérbyggingu samtengdri húsnæði Hrafnistu.

Á Hrafnistu í Kópavog er ekki mikið um fyrirfram ákveðna dagskrá í félagslífi frekar en á venjulegu heimili, en þó er að jafnaði ein uppákoma á dag, t.d. tálgun, harmonikuspil, botsja, gönguferðir, böll og helgistundir.


 

Bækur um Lev og bo

Hjorth-Hansen, J. og Nielsen, A. K. (2003). Fra plejehjem til leve- og bomiljøer.

Danmark: Munksgaard.

Jensen, K.J. (2004). Leve- og bomiljoer. Metoder, principper og erfaringer fra hverdagen.

 Hellerup: Vidensecnter på Ældreområdet.

Nielsen, E. B. (2005). Samarbejde mellem plejehjemsbeboere, pårørende og personale-  en

 treklang med mislyde? Interviewstudie. Hellerup: Videnscenter på Ældreområdet.

Nielsen, E. B. (2005). Samarbejde mellem plejehjemsbeboere, pårørende og personale-  en

 treklang med mislyde? Litteraturstudie. Hellerup: Videnscenter på Ældreområdet.

Schack-Brockenhuus, A. Høeg, D. Porse, E. og Svendsen, C. (ritsj.) (2005). Samarbejden

mellem plejehjemsbeboere, Pårørnede og personale – en treklang með mislyde?

Antologi. Hellerup: Videnscenter på Ældreområdet.

 

 

 


Hrafnista Kópavogi480210-2040Aðalsími 531 4000Fax 531 4009Boðaþingi 5-7203 Kópavogihrafnista@hrafnista.is