Hjúkrun
Á Hrafnistu í Kópavogi starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, félagsliðar og starfsfólk við umönnun allan sólahringinn.
Hjúkrun og umönnun er veitt samkvæmt einstaklingshæfðri hjúkrun, þannig að hver heimilismaður er með sinn hjúkrunarfræðing, sjúkraliða og/eða starfsmann í aðhlynningu sem hefur umsjón með umönnun viðkomandi.
Markmið hjúkrunar er að:
· Veita hjúkrun og umönnun eftir þörfum hvers og eins
· Styrkja heimilismenn til sjálfshjálpar
· Auðvelda heimilismönnum að aðlagast breyttum aðstæðum
· Tryggja vellíðan og öryggi heimilismanna
· Standa vörð um sjálfsmynd og sjálfsvirðingu heimilismanna
· Efla samvinnu og stuðning við fjölskyldur heimilismanna
Leitast er við að hafa fjölskyldufund einum til tveimur mánuðum eftir að heimilismaður flytur á heimilið og síðan eftir þörfum ef einhverjar breytingar verða á líðan heimilismanns.