Boðinn
Þjónustumiðstöðin Boðaþingi 9 er opin frá kl 9:00 til 16:00 alla virka daga.
Þar er hægt að setjast niður í notalegu umhverfi yfir kaffibolla og heimabökuðu meðlæti, lesa dagblöðin, hlusta á útvarp og ræða málin.
Hádegisverður er framreiddur frá kl. 12:00 – 13:00 alla virka daga.
Hádegisverð þarf að panta daginn áður í síma 512-7400.
Þjónustumiðstöðin er opin fólki á öllum aldri óháð félagsaðild, en sú starfsemi sem er niðurgreidd er eingöngu ætluð eldra fólki, búsettu í Kópavogi.
Dagskrá félagsheimilisins er auglýst á töflu í anddyri þjónustumiðstöðvarinnar.
Einstaka viðburðir eru auglýstir á auglýsingatöflum á deildum.
Sími: 512-7400