.

Hvíldarinnlögn

Á Hrafnistu í Hafnarfirði er leyfi fyrir 10 hvíldarrýmum.

Hvíldarinnlögn er liður í að viðhalda lífsgæðum einstaklings sem og stuðningur og ráðgjöf  við aðstandendur.

Áhersla er lögð á styrkingu líkamlegra, andlegra og félagslegra þátta.

Á meðan á dvöl stendur nýtur hvíldargestur allrar almennrar þjónustu sem Hrafnista hefur upp á að bjóða ásamt því að taka þátt í félagsstarfi og þeim  viðburðum sem í boði eru.

Hvíldarinnlögn getur varað í allt að sex vikum, allt eftir óskum og þörfum hvers og eins.

Möguleiki er á hvíldarinnlögn oftar en einu sinni á ári.

Ef óskað er eftir dvöl þá vinsamlegast hafið samband við viðkomandi heimilislækni eða starfsfólk heimahjúkrunar.

Ef einstaklingur er inniliggjandi á LSH þá hefur útskriftarteymi LSH með umsóknir að gera.  

Deildarstjóri er Guðríður Sigurðardóttir
Netfang: gudridur.sigurdardottir@hrafnista.is

Aðstoðardeildarstjóri er Hjördís Ósk Hjartardóttir
Netfang: hjordis.hjartardottir@hrafnista.is

Hjúkrunarfræðingur á vakt er í síma 585 3145 /664 9447

Yfirlæknir er Óskar Jónsson

Umsókn um hvíldarinnlögn

Upplýsingar fyrir hvíldargesti

Upplýsingar fyrir fagfólk


Hrafnista Hafnarfirði491177-0129Aðalsími 585 3000Fax 585 3209Hraunvangur 7220 Hafnarfirðihrafnista@hrafnista.is