Hrafnista Vífilsstöðum hjúkrunarheimili aldraðra

Vífilsstaðir er hjúkrunarheimili fyrir 50 aldraða hjúkrunarsjúklinga.
Reksturinn hófst í byrjun árs 2004 eftir að gerðar höfðu verið gagngerðar breytingar á húsinu sem byggt var árið 1910. Húsnæðið var allt endurhannað og því breytt í því skyni að koma eins mikið og hægt væri til móts við nútíma kröfur um hjúkrunarheimili. Allur húsbúnaður og tæki er nýr. Hrafnista annast rekstur Vífilsstaða, en húsið er í eigu ríkisins. Níu af hverjum tíu heimilismanna koma beint af öldrunardeildum LSH, en 10% heimilismanna eru teknir inn samkvæmt hefðbundnum inntökureglum.

Starfseminni er skipt í tvær deildir. Fyrsta hæðin er rekin sem ein deild með 14 heimilismönnum, en önnur og þriðja hæðin eru reknar sem ein deild með 36 heimilismönnum.

Stöðugildi eru 53 og starfsmenn um 80. Matur kemur frá Hrafnistu í Hafnarfirði. Sjúkraþjálfun er á staðnum ásamt aðstöðu til fótsnyrtingar og hárgreiðslu. Prestur starfar á Vífilsstöðum, áhersla er lögð á að sinna sálgæslu og trúarlegri þjónustu við heimilismenn, aðstandendur og starfsfólk. Læknisþjónusta er veitt samkvæmt samningi við LSH og hefur læknir fastar komur til heimilisins. Ennfremur er bakvakt öldrunarlækna að kvöld og næturlagi

Einbýlisherbergi



Tvíbýlisherbergi



Þríbýlisherbergi








Ársskýrsla Vífilsstaða 2008


Hrafnista Vífilsstöðum420503-4580Aðalsími 599 7000Fax 555 0782Vífilsstaðarvegi 210 Garðabærhrafnista@hrafnista.is