Hrafnista Víðinesi hjúkrunarheimili aldraðra
er staðsett á Álfsnesi í u.þ.b. 10 mínútna akstusleið frá frá Mosfellsbæ. Heimilið sést vel frá Vesturlandsvegi undir Úlfarsfelli ef horft er til norðurs. Heimilið var opnað 15. apríl 1999 eftir miklar endurbætur á húsnæðinu. Sjómannadagsráð hefur frá upphafi árs 2002 rekið heimilið og hafa stjórnendur Hrafnistuheimilanna séð um reksturinn.
Á heimilinu eru tvær deildir sem hvor um sig er með 19 heimilismenn eða alls 38 heimilismenn. Um 55 manns starfa þar í um 35 stöðugildum. Heimilið hefur upp á að bjóða almenna þjónustu til heimilismanna svo sem fót- og hársnyrtingu.
Móttökueldhús er á staðnum en allur matur til heimilisins er sendur frá Hrafnistu Reykjavík.
Í iðjuþjálfun eru starfandi: Iðjuþjálfi í 5% stöðugildi, leiðbeinandi í hlutastarfi og listmeðferðarfræðingur í 10% stöðugildi. Starfsmenn hafa umsjón með dægradvöl og félagsstarfi heimilismanna.
Aðstaða er til sjúkraþjálfunar. Læknisþjónusta er veitt samkvæmt samningi við LSH og hefur læknir fastar komur til heimilisins, ennfremur er bakvakt öldrunarlækna að kvöld- og næturlagi.
Áður en að heimilinu var breytt í hjúkrunarheimili var það rekið sem heimili fyrir áfengissjúka og hét þá Vistheimili Bláa Bandsins en sú meðferðarstofnun hóf starfsemi í Víðinesi árið 1959.
Ársskýrsla Víðiness 2008