Brúnavegur 9, Reykjavík
Við Hrafnistu Reykjavík, að Brúnaveg 9, hafa risið glæsilegar íbúðir fyrir 60 ára og eldri. Um er að ræða fjölbýlishús með 24 íbúðum og er tengigangur milli fjölbýlishússins og Hrafnistu Reykjavík.
Íbúðirnar eru frá 70 fm.-114 fm.(með sameign). Þar eru 4 stúdíóíbúðir og 20 tveggja herbergja íbúðir af mismunandi stærðum. Allar íbúðirnar eru með yfirbyggðum svölum og vestur íbúðirnar eru með tvennum svölum, en frá þeim íbúðum er mikið útsýni. Í íbúðunum er m.a. halogen lýsing og mynddyrasími.
Íbúðirnar eru leiguíbúðir og er leigan frá 126 þúsund krónum á mánuði. Hússjóður er kr. 10.600.- á mánuði og breytist hann í samræmi við raunkostnað, en leigan breytist í samræmi við hlufallslegar breytingar á neysluverðsvísitölu með húsnæði. Auk þess þarf að greiða fyrir rafmagn og hita á viðkomandi íbúð.
Ekki þarf að greiða fyrir afnotarétt (eins og á íbúðunum við Hrafnistu Hafnarfirði), en greiða þarf 3ja mánaða
húsaleigu sem tryggingarfé. Leigjendur geta fengið húsaleigbætur skv. gildandi reglum.
Hægt er að fá frekari upplýsingar ( t.d. ef íbúð losnar) eða láta skrá sig á biðlista eftir íbúð hjá Ásgeiri Ingvasyni, asgeir@sjomannadagsrad.is eða asgeir@hrafnista.is og jona@hrafnista.is , skrifstofu Sjómannadagsráðs Hrafnistu Reykjavík, alla virka daga frá kl. 8 – 16 og í síma : 585-9500/585-9301/585-9302 Fax : 585-9308/585-9509.
Hér má finna verðskrá Brúnavegi 9
Verðskrá fyrir þjónustu má finna hér