Íþróttastarf á Hrafnistu í Reykjavík
Á Hrafnistu í Reykjavík starfar einn íþróttakennari sem sér um íþróttir og almenna heilsurækt. Markmiðið er að viðhalda líkamlegri færni, bæta styrk og þol. Auka félagsleg tengsl og viðhalda gleði og ánægju sem myndast í góðra vina hópi.
Morgunleikfimi: Á hverjum virkum morgni á endurhæfingardeildinni
Sundleikfimi: Þrír hópar mæta tvisvar í viku hálftíma í senn. Lögð er áhersla á einfaldar liðkandi og styrkjandi æfingar.
Útiganga: Tvisvar í viku. Oftast fara tveir starfsmenn með.
Pútt: Mikið stundað á sumrin. Iðkendur taka þátt í mótum ýmist utan heimilisins eða innan þess. Stefnan er að halda mót milli starfsfólks og heimilisfólks næsta sumar.
Píla: Alltaf á föstudögum. Mjög góð íþrótt fyrir jafnvægi og fínhreyfingar.
Boccia: Tvisvar í viku. Þátttakendur keppa ýmist sín á milli eða við aðra utanaðkomandi aðila.
Leikfimi á öðrum deildum: Ætluð þeim sem ekki komast sjálfir út á endurhæfingardeildina.
Þjálfun í tækjasal: Opið öllum heimilismönnum á tilsettum tímum. Áður en morgunleikfimin byrjar nýta margir sér aðstöðuna undir leiðsögn starfsfólks.
Leikfimi fyrir íbúa í leiguíbúðum: Tvisvar í viku geta íbúar Brúnavegs 9, sem borga félagsgjöld, nýtt sér aðstöðu í tækjasalnum og tekið þátt í leikfimi undir stjórn íþróttakennara.
Annað sem íþróttakennari tekur að sér eru uppákomur eins og púttmót, pílumót, jólasund, kvennahlaup og annað sem tengist íþróttum og heilsurækt.