Dvalar- og hjúkrunarheimili
Markmið okkar er að veita hjúkrun og umönnun miðað við þarfir hvers og eins, styrkja fólk til sjálfshjálpar og auðvelda þeim að aðlagast breyttum aðstæðum. Áhersla er lögð á að starfsmenn þekki heimilismanninn í ljósi þess sem hann hefur staðið fyrir á sinni lífsleið, stuðli að vellíðan og öryggi, og standi vörð um sjálfsmynd og sjálfsvirðingu hans.
Hjúkrun er veitt af fagfólki allan sólarhringinn og læknar eru á sólarhringsvakt. Við teljum mikilvægt að viðhalda góðum og styðjandi samskiptum við fjölskyldur heimilismanna.
Á Hrafnistu er að finna fjölbreytta þjónustu og starfsemi. Má þar nefna sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, fótsnyrtingu, hárgreiðslu, verslun, handavinnu og sálgæslu. Félags- og menningarstarf er í boði, auk þess sem guðsþjónustur og skemmtikvöld eru haldin reglulega.
Deildarstjóri :
Unnur Guðfinna Guðmundsdóttir
S:585-9450 Gsm: 693-9515
Tölvupóstfang: unnur.gudmundsdottir@hrafnista.is
Aðstoðardeildarstjóri:
Hildur Ólafsdóttir
S:585-9450
Tölvupóstfang: hildur.olafsdottir@hrafnista.is
Hjúkrunarfræðingur á vakt er í síma 585 9445 / 693 9545