Dagþjálfun Hrafnistu  -Gullfossstofa-

Dagþjálfun Hrafnistu er endurhæfingardeild eldri borgara. Áhersla er lögð á félagslega virkni, líkamlega þjálfun og eflingu sjálfsins.

Deildin er með pláss fyrir 30 einstaklinga á dag. Hægt er að vera frá einum upp í fimm daga vikunnar í allt að átta vikur í senn.   Dagþjálfun er opin frá kl. 8–19 alla virka daga.

Markmið dagþjálfunar er að einstaklingurinn eflist í sínu daglega lífi. Þá er beint sjónum að eflingu viljans,áhugahvatar, trúar á eigin áhrifamátt  og getu til eigin umsjár.

Leiðarljós dagþjálfunarinnar er að viðkomandi eignist innihaldsríkara líf, eflist á sál og líkama og verði öruggur við að búa í eigin húsnæði.

Ferli endurhæfingarinnar í dagþjálfunin  fer þannig fram að fyrstu dagarnir fara í að kynnast deildinni og dagskrá hennar. Endurhæfingin er bæði félagsleg og líkamleg. Líkamlega þjálfunin er fólgin í sjúkraþjálfun, bæði einstaklings– og hópþjálfun. Einnig eru íþróttakennarar sem sinna hóptímum í leikfimi og sundleikfimi ásamt öðrum íþróttum

sundleikfimi

Félagsleg endurhæfing er annars vegar fólgin í því að taka þátt í félagsstarfi deildar og hússins. Hins vegar að vera í iðjuþjálfun. Viðkomandi og iðjuþjálfi í samvinnu kortleggja aðstæður viðkomandi sem er forsenda endurhæfingaráætlunar. Þjálfunin getur falið í sér handþjálfun vegna gigtar, stunda ýmiskonar iðju eins og tómstundir.
Fræðsla er hluti af dagskránni. Í henni verður fjallað um byltuvarnir eins og hvernig megi minnka byltuhættu heima fyrir og áhrif lyfja á t.d. jafnvægisskynið. Einnig um mikilvægi virkni sem lið í að rjúfa félagslega einangrun og efla trú á eigin áhrifamátt o.s.frv. Veitt er aðstoð við að finna
varanleg úrræði að útskrift lokinni.

gullfosstofa

Umsóknarferlið:
Umsóknin þarf að fara í gegnum samráðshóp sem samanstendur af fulltrúum Heimaþjónustu Reykjavíkur, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, útskriftarteymi Landspítalans og Hrafnistu. Einnig má leggja umsókn beint inn til deildarinnar. Fylla þarf út þar til gert eyðublað sem er að finna á heimasíðu Hrafnistu—www.hrafnista.is.
Finnbjörg Skaftadóttir
Finnbjörg Skaftadóttir   
Sími: 585-9390     Gsm: 693-9591    
Póstfang:  finnbjorg.skaftadottir@hrafnista.is

      

Leitarvél


Heimilin





 
 
Handverksvinnustofa
Hrafnistu Reykjavík
Sölusíða
 

Hrafnista Reykjavík640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is