Hrafnista í Reykjavík er hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða.

Á Hrafnistu í Reykjavík búa 250 heimilismenn á vistheimili og hjúkrunardeildum. 

Í boði eru hvíldarinnlagnir sem er liður í að viðhalda lífsgæðum einstaklinga sem og stuðningur við aðstandendur aldraðra í heimahúsum.

Á lóð heimilisins eru 26 raðhús við Jökulgrunn 39 íbúðir í fjölbýlishúsi við Kleppsveg.  Íbúar í þessu húsnæði, sem er í einkaeign, geta sótt ýmsa þjónustu til Hrafnistu og eru með neyðarhnappa tengda Hrafnistu. Við Brúnaveg eru leiguíbúði í eigu Naustavarar.

Þess má geta að á Hrafnistu í Reykjavík bjuggu um 450 manns þegar flest var, en í tímans rás hafa kröfur aukist um meira rými og betri aðstöðu fyrir heimilismenn og starfsfólk. Af þeim sökum hafa verið gerðar breytingar og endurbætur á húsnæði Hrafnistu.

Vernduð eining fyrir minnissjúka heimilismenn er á Hrafnistu í Reykjavík. Að auki eru í Reykjavík 5 rými fyrir heyrnarlausa eða heyrnarskerta heimilismenn, sem nota táknmál við tjáskipti.

Hjúkrunarforstjóri er Alma Birgisdóttir.

Smellið á mynd til að fá meiri upplýsingar


Leitarvél


Heimilin





 
 
Handverksvinnustofa
Hrafnistu Reykjavík
Sölusíða
 

Hrafnista Reykjavík640169-7539Aðalsími 585 9500Fax 585 9509Laugarási104 Reykjavikhrafnista@hrafnista.is