Hrafnista Kópavogi  er hjúkrunarheimili með 44 íbúum

Hrafnista Kópavogi sem er rekið af Hrafnistu er í rólegu og friðsælu umhverfi rétt við Elliðavatn í Kópavogi. Áfast við hjúkrunarheimilið er þjónustumiðstöð og þar verður sjúkraþjálfun, sundlaug, hárgreiðsla, fótsnyrting, dagvistun, ásamt félagsstarfi fyrir íbúa Kópavogs. Einnig verður innangengt í öryggis- og þjónustuíbúðir sem Naustavör byggir, en þær verða tilbúnar með haustinu 2010.

Hrafnista Kópavogi  er rekin eftir nýrri hugmyndafræði í öldrunarþjónustu. Rík áhersla er lögð á sjálfsákvörðunarrétt og þátttöku íbúa. Við tökum það besta frá sjálfstæðri búsetu og sameinum það öryggi hjúkrunarheimilis. Starfsfólk og íbúar vinna saman við að skapa heimilislegt, hlýlegt og virkt samfélag.

Hönnun og umhverfi hússins miðast við áherslurnar í starfinu, þess vegna eru á Hrafnistu Kópavogi 4 litlar einingar með aðeins 11 íbúum hver. Allir íbúar hafa um 35 fm² sér herbergi með baðherbergi og teeldhúsi. Í miðrými hverrar einingar eru opin fullbúin eldhús, borðstofa og setustofa.

Á Hrafnistu Kópavogi starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar, félagsliðar, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og almennt starfsfólk. Einnig njótum við góðs af stóru systrunum, Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði, en margir sem þar starfa sinna líka Hrafnistu  Kópavogi 


Inntaka íbúa á Hrafnistu Kópavogi  fer fram í gegnum vistunarmatskerfi Landlæknisembættisins.

Umsókn um vistunarmat í hjúkrunarrými

Sjá reglugerð um mat á þörf fyrir hjúkrunarrými

Forstöðumaður Hrafnistu í  Kópavogi er Hrönn Ljótsdóttir sími 531 4010

Deildarstjóri er Bjarney Sigurðardóttir sími 531 4005      


Hrafnista Kópavogi480210-2040Aðalsími 531 4000Fax 541 3009Boðaþingi 5-7203 Kópavogihrafnista@hrafnista.is