Listmeðferðarfræðingur

 Fjóla Eðvarðsdóttir

Í listmeðferð er einstaklingnum veitt tækifæri til að tjá tilfinningar sínar og hugarheim með myndlistarefnivið.

Sú myndræna og skapandi nálgun sem notuð er getur veitt aðgang að þáttum í tilfinningalífi einstaklingsins sem talað mál megnar oft ekki að gera.

 
Meginmarkmið listmeðferðar á Hrafnistu felst í því :
• Að hjálpa einstaklingnum að laða fram eigin sköpunargleði.
• Að vinna með þætti eins og kvíða, óöryggi, eirðarleysi og þunglyndi.
• Að styrkja færni.
• Að skapa vellíðan og slökun.
• Að veita leið til að tjá tilfinningar .
• Að veita leið til að tjá hugsanir og minningar tengda lífi einstaklingsins.
• Að vinna með samskipti og félagsleg tengsl.

Listmeðferð:
Hrafnista Hafnarfirði:    Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 08:00-16:00

Listmeðferðarfræðingur starfar samkvæmt starfslýsingu og siðareglum Félags listmeðferðarfræðinga á Íslandi.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í Iðjuþjálfun Hrafnistu Reykjavík
Tölvupóstsfang:  fjola@hrafnista.is


Hrafnista Hafnarfirði491177-0129Aðalsími 585 3000Fax 585 3209Hraunvangur 7220 Hafnarfirðihrafnista@hrafnista.is