Iðjuþjálfun
Iðjuþjálfar Hrafnistu starfa undir félags- og þjónustusviði og er framkvæmdarstjóri sviðsins Soffía Egilsdóttir, félagsráðgjafi. Markmið iðjuþjálfa er að efla færni einstaklinga og viðhalda þátttöku þeirra í því sem skiptir þá máli og bjóða uppá fjölbreytta þjónustu svo flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi og innan síns áhugasviðs. Til þess notast iðjuþjálfa við m.a. fræðslu, ráðgjöf, hjálpartæki og þjálfun.
Manneskjunni er mikilvægt að stunda þá iðju sem hún hefur áhuga á og hefur það jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins. Leitast er við að vinna einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á. Iðjuþjálfar sinna bæði einstaklingum og hópum með það að leiðarljósi að bæta andlega líðan, félagslega og líkamlega hæfni einstaklingsins.
Þegar einstaklingur veikist eða eldist er algengt að röskun verði á daglegri iðju hans. Skert sjálfsbjargargeta getur haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd og dregið úr frumkvæði til þátttöku í afþreyingum og tómstundum. Iðjuþjálfar leitast við að virkja einstaklinginn þannig að hann geti öðlast lífsfyllingu þrátt fyrir sjúkdóma, öldrun eða fötlun. Áhersla er lögð á að aldraðir fái tækifæri til þátttöku með því að aðlaga umhverfið, afþreyinguna eða með því að veita endurhæfingu í gegnum þá tómstundaiðju sem þeir hafa áhuga á. Boðið er upp á þjálfun á færni til iðju á einstaklingsbundinn hátt, þannig að samspil sé milli íbúans, iðjunnar og umhverfisins
Boðið er upp á þjálfun á færni til iðju á einstaklingsbundinn hátt, þannig að samspil sé milli íbúans, iðjunnar og umhverfisins. Einstaklingsmeðferð sem og hópaþjálfun er í boði á vinnustofu á vegum iðjuþjálfunar. Þar gefst einstaklingnum möguleiki á að fást við ýmis verkefni, umræður og handíðir s.s. prjónaskap, málun á efni, myndvefnað, leirvinnu og myndlist.
Tilgangur verkefna, hópastarfs og æfinga iðjuþjálfunar er m.a. að styrkja sjálfsímynd einstaklinga og stuðla að aukinni vellíðan svo viðkomandi verði betur í stakk búinn að takast á við fjölbreytt verkefni. Við íhlutun er lögð áhersla á styrkleika skjólstæðingsins. Með það að leiðarljósi að einstaklingurinn njóti sín eigin forsendum.
Iðjuþjálfi og starfsmenn iðjuþjálfunar hjálpast að við að finna verkefni sem henta hverjum og einum einstaklingi út frá þeirra lífsreynslu, áhugamálum og færni. Forðast er að hafa verkefnin of krefjandi né of létt til að einstaklingurinn upplifi ekki eriðleika né leiða.
Ávallt er um að ræða samvinnu milli einstaklingsins og iðjuþjálfans. Haft er að leiðarljósi að einstaklingurinn haldi í trúna á eigin áhrifamátt og hafi kost á að stunda þá iðju sem hefur gildi og þýðingu fyrir hann.
Við deild iðjuþjálfunar og félagsstarfs í Hafnarfirði starfa tveir iðjuþjálfar, listmeðferðarfræðingur, sex starfsmenn á vinnustofu og fimm starfsmenn í félagsstarfi. Starfsmenn deildarinnar starfa á vinnustofu heimilisins sem er að finna í kjallaranum, í Menningarsalnum sem er á 1. hæð heimilisins og á hjúkrunardeildum. Boðið er uppá vettvangsnám á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir nema í iðjuþjálfun við Háskóla Íslands, leiðbeinandi er Guðrún iðjuþjálfi.
Iðjuþjálfi Hrafnistu Hafnarfirði
Guðrún Hallgrímsdóttir
S: 585-3176 Gsm: 664-9467
Tölvupóstfang: gudrunh@hrafnista.is