Hjúkrunardeild 3-B

Hjúkrunardeild 3-B er staðsett á 3.hæð í B álmu Hrafnistu í Hafnarfirði.
Deildin var opnuð 1983. 

Flestir íbúar deildarinnar flytjast frá dvalarheimili Hrafnistu. Þeir koma á hjúkrunardeildina þegar heilsa og kraftar fara að þverra og þeir þurfa á aukinni umönnun og hjúkrun að halda.   Aðrir koma frá heimilum sínum eða öðrum stofnunum að undangengnu vistunarmati.
Á deildina er fólk komið til að dvelja síðustu æviárin.  Hjúkrunardeildin er því heimili þeirra og starfsemin tekur mið af því.   Áhersla er lögð á að sameina kosti venjulegs heimilis og almennrar  hjúkrunardeildar.

Markmið:
Markmið hjúkrunarinnar er að veita hjúkrun og umönnun miðað við þarfir hvers einstaklings. Styrkja heimilisfólk til sjálfshjálpar og auðvelda þeim að aðlagast breyttum aðstæðum. Stuðla að vellíðan og öryggi, standa vörð um sjálfsmynd og sjálfsvirðingu og efla stuðning við fjölskyldur heimilisfólksins.

Innra starf deildarinnar:
Hjúkrun og umönnun er veitt allan sólarhringinn og læknar eru á sólarhringsvakt. Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ófaglærðir starfsmenn við aðlynningu.  Auk þess starfsfólk í býtibúri, ræstingu og virkni.
Leitast er við að hafa umhverfið vistlegt og öruggt. Fólk flytur því með sér persónulega muni á herbergin sín, eftir því sem kostur er. Ættingjar og vinir heimilisfólksins eru hvattir til samskipta við sitt fólk og heimsóknartími deildarinnar er því allt frá morgni og fram á kvöld.

Önnur starfsemi og þjónusta:
Heimilisfólk hjúkrunardeildarinnar hefur aðgang að hinni fjölbreyttu starfsemi og þjónusta sem fram fer innan veggja Hrafnistu s.s. sjúkraþjálfun, sérfræðiþjónustu lækna, hárgreiðslu, fótsnyrtingu og handavinnu. Verslun er opin alla virka daga. Félags- og menningarstarf er í boði og guðsþjónustur haldnar. 


Deildarstjóri : 
 
Valgerður Jónsdóttir 
S:585-3111     Gsm: 664-9412
Tölvupóstfang: valgerdur.jonsdottir@hrafnista.is

Aðstoðardeildarstjóri : 

Dóra María Garðarsdóttir
S-585-3110
Tölvupóstfang:
  dora.gardarsdottir@hrafnista.is

   
 


Hrafnista Hafnarfirði491177-0129Aðalsími 585 3000Fax 585 3209Hraunvangur 7220 Hafnarfirðihrafnista@hrafnista.is