Deildin var tekin í notkun 10. nóv. 1982. Þar búa að jafnaði 29 manns
Eitt herbergi deildarinnar er notað fyrir bráðainnlögn og ætlað fyrir fólk frá dvalarheimili Hrafnistu ef um tímabundin veikindi er að ræða..
Flestir íbúar deildarinnar flytjast frá dvalarheimili Hrafnistu og koma á hjúkrunardeildina þegar heilsa og kraftar fara að þverra og þeir þurfa á aukinni umönnun og hjúkrun að halda. Aðrir koma frá frá heimilum sínum eða öðrum stofnunum, að undangegnu vistunarmati.
Á deildina er fólk komið til að dvelja síðustu æviárin. Hjúkrunardeildin er því heimili þess og út frá því miðast starfsemin. Áhersla er lögð á að sameina kosti venjulegs heimilis og almennrar hjúkrunardeildar.
Markmið:
Markmið hjúkrunarinnar er að veita hjúkrun og umönnun miðað við þarfir hvers einstaklings, styrkja heimilisfólk til sjálfshjálpar og auðvelda þeim að aðlagast breyttum aðstæðum. Stuðla að vellíðan og öryggi, standa vörð um sjálfsmynd og sjálfsvirðingu og efla stuðning við fjölskyldur heimilisfólksins.
Innra starf deildar:
Hjúkrun og umönnun er veitt allan sólarhringinn og læknar eru á sólarhringsvakt.
Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ófaglærðir starfsmenn við aðhlynningu, auk þess starfsfólk í býtibúri, ræstingu og í virkni.
Leitast er við að hafa umhverfi vistlegt og öruggt. Fólk flytur því með sína persónulegu muni á herbergi sín, eftir því sem kostur er. Ættingjar og vinir heimilisfólksins eru hvattir til samskipta við sitt fólk. Heimsóknartími deildarinnar er því allt frá morgni og fram á kvöld.
Önnur starfsemi og þjónusta:
Fjölbreytt starfsemi og þjónusta fer fram innan veggja Hrafnistu sem heimilisfólk hjúkrunardeildarinnar hefur aðgang að, s.s. sjúkraþjálfun, sérfræðiþjónusta lækna, hárgreiðsla, fótsnyrting og handavinna.
Verslun og banki eru opin alla virka daga.
Félags- og menningarstarf er í boði, auk þess sem guðsþjónustur eru haldnar.
Sími deildar er : 585 3105
Deildarstjóri :
Unnur Magnúsdóttir
Sími: 585 3106 Tövupóstfang: unnur.magnusdottir@hrafnista.is
Aðstoðardeildarstjóri :
Hendrikka Alfreðsdóttir
Sími: 585 3106 Tölvupóstfang: hendrikka.alfredsdottir@hrafnista.is