
Endurhæfingardeild Hrafnistu í Hafnarfirði
Sjúkraþjálfun hefur verið starfrækt á Hrafnistu í Hafnarfirði frá því 1. janúar 1987. Síðan þá hefur starfseminni vaxið fiskur um hrygg, bæði hefur deildin verið stækkuð og starfsfólki fjölgað síðan þá.
Á endurhæfingardeildinni starfa 12 manns og skiptast þeir þannig: 4 sjúkraþjálfarar, 2 íþróttakennarar, 5 aðstoðarmenn og 2 baðverðir. Starfshlutföll eru mismunandi.
Endurhæfingardeildin er staðsett á fyrstu hæð heimilisins í B-álmu. Deildin var endurbætt og stækkuð verulega árið 2005, aðstaðan er nú mjög rúmgóð og björt, en alltaf er not fyrir meira rými.
Húsnæðið skiptist í tækjasal, vinnuaðstöðu fyrir sjúkraþjálfara með klefum og opnu rými, vinnu- og kaffiaðstöðu fyrir starfsfólk og sundlaug ásamt tveim heitum pottum.
Deildin er opin alla virka daga frá kl. 08:00 – 16:00. Sundlaugin er opin alla virka daga frá kl. 08:15 en misjafnt hvenær lokað er. Eftir lokun sundlaugar á daginn er hún leigð út til aðila utan Hrafnistu. Má þar m.a. nefna kvennaleikfimi, hóp fyrir heilabilaða,ungbarnasund o. fl.
Hverjir geta nýtt sér þjónustu endurhæfingardeildar ?
Þeir sem geta nýtt sér þjónustuna eru íbúar Hrafnistu í Hafnarfirði. Enda er það markmið deildarinnar að annast endurhæfingu og þjálfun heimilisfólks á Hrafnistu í Hafnarfirði í víðum skilningi þess orðs.
Einnig hafa einstaklingar sem eru í dægradvöl, íbúar Nausta- og Boðahleina og Hraunvangs (sem allt eru íbúðir sem tengjast Hrafnistu) aðgang að þjónustunni skv. ákveðnum reglum.
Í hverju felst starf sjúkraþjálfara á Hrafnistu?
Verkefnin sem snúa að sjúkraþjálfurum eru fjölbreytt og mörg. Algengast er að heimilismenn nýti sér aðstoð sjúkraþjálfara vegna vandamála tengdum stoðkerfinu, s.s. verkja, stirðleika, kraftminnkunar, jafnvægisskerðingar, ofl. Einnig aðstoða þeir þá sem hafa beinbrotnað eða farið aðgerðir við að ná aftur fyrri færni. Oftast er um einstaklingsmeðferð að ræða en einnig þjálfa þeir jafnvægi og styrk í litlum hópum.
Sjúkraþjálfarar sjá um öll hjálpartæki heimilisfólks s.s. útvegun hjólastóla og fylgihluti tengda þeim, göngugrindur, spelkur, ofl. Einnig eru þeir ráðgefandi varðandi húsbúnað heimilismanna t.d. rúm og stóla, sé þess óskað.
Sjúkraþjálfarar annast einnig hluta af RAI-mati heimilismanna, sem er alþjóðlegt mat sem metur hjúkrunarþörf. Þeir sitja reglulega fundi með öðru starfsfólki heimilisins og leiðbeina um rétta vinnutækni.
Tækjabúnaður endurhæfingardeildar er mjög góður sem og öll aðstaða. Á deildinni má finna laser, stuttbylgjur, hljóðbylgjur, TNS tæki og margt fleira.
Íþróttastarf:
Ýmis konar hópleikfimi/stólaleikfimi fer fram á vegum deildarinnar, og annast íþróttakennarar þá að mestu.
Tímarnir fara fram í fjölnotasal á 1. hæð og á hverri hjúkrunardeild fyrir sig. Einnig eru leikfimitímar f. Íbúa Hraunvangs á 1. hæð í Hraunvangi 1. Daglega sjá íþróttakennarar um starfsmannaleikfimi sem fer fram í tækjasal.
Sundleikfimihóparnir eru nokkrir, og misþungir. Einn hópurinn gerir æfingar upp við bakkann, annar út í miðri laug og svo fer íþróttakennarinn ofan í laugina með öðrum.
Á sumrin hafa íþróttakennarar heimilisins yfirumsjón með starfsemi púttklúbbsins og skipuleggja og halda utan um öll mótin sem haldin eru á vegum heimilisins, og fara í keppnisferðir. Púttklúbburinn er mjög virkur og alltaf bætast einhverjir áhugasamir í hópinn.
Yfir sumartímann stendur deildin einnig fyrir ýmsum atburðum, s.s gönguferðum og kvennahlaupi.
Endurhæfingadeildin hefur í gegnum tíðina átt sér marga stuðningsmenn / hópa, sem hafa verið mjög rausnarlegir við deildina, og gefið henni hin ýmsu tæki sem hafa komið sér mjög vel. Allar þessar góðu gjafir hafa gert okkur kleift að útbúa deildina sem best og þjóna fleiri einstaklingum. Starfsfólk Þakkar kærlega þennan hlýhug.
Deildarstjóri
Bryndís F. Guðmundsdóttir,
s. 585-3085
Tölvupóstfang: bryndisfg@hrafnista.is