Dvalar- og hjúkrunarheimili
Heimilisfólk hjúkurnarvistarinnar flyst frá heimili sínu eftir að gert hefur verið vistunarmat og sótt um vistun á Hrafnistu. Um er að ræða einstaklinga sem eiga orðið erfitt með að sjá um sig sjálfir heima við og þurfa að komast í öryggi og fá aukna umönnun. Á hjúkrunarvistina er heimilisfólk komið til að dvelja síðustu æviárin. Hjúkrunarvistin er því heimili fólksins og út frá því miðast starfsemin..
Markmið
Markmið hjúkrunarinnar er að veita hjúkrun og umönnun miðað við þarfir hvers einstaklings, styrkja heimilisfólk til sjálfshjálpar og auðvelda þeim að aðlagast breyttum aðstæðum. Stuðla að vellíðan og öryggi, standa vörð um sjálfsmynd og sjálfsvirðingu og efla stuðning við fjölskyldur heimilisfólksins.
Innra starf deildar
Hjúkrun og umönnun er veitt allan sólarhringinn og læknar eru á sólarhringsvakt. Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ófaglærðir starfsmenn við aðhlynningu. Leitast er við að hafa umhverfi vistlegt og öruggt. Fólk flytur því með sína persónulegu muni á herbergi sín, eftir því sem kostur er. Heimsóknartími deildarinnar er því allt frá morgni og fram á kvöld.
Önnur starfsemi og þjónusta
Fjölbreytt starfsemi og þjónusta fer fram innan veggja Hrafnistu sem heimilisfólk hjúkrunarvistarinn hefur aðgang að, s.s. sjúkraþjálfun, sérfræðiþjónusta lækna, hárgreiðsla, fótsnyrting og handavinna. Félags- og menningarstarf er í boði, auk þess sem guðsþjónustur eru haldnar
Verslun og banki eru opin alla virka daga.
Deildarstjóri:
Guðríður Sigurðardóttir S: 585-3150 Gsm: 664- 9572
Tölvupóstfang: gudridur.sigurdardottir@hrafnista.is
Aðstoðardeildarstjóri:
Hjördís Ósk Hjartardóttir S-585-3145
Tölvupóstfang: hjordis.hjartardottir@hrafnista.is
Starfsmenn vistheimilis
Læknarita- og hjúkrunarritari.
Sigurlína Óskarsdóttir
S: 585-3068
Tölvupóstfang: sigurlina.oskarsdottir@hrafnista.is