Bókasafn Hrafnistu, Hafnarfirði. Staðsett á 5.hæð.
Starfsmenn bókasafns eru Kristín Pálsdóttir og Gréta Pálsdóttir
Sími: 585-3000 bs.- 585-3170
Tölvupóstsfang: bokasafnhh@hrafnista.is
Opnunartími er sem hér segir:
Mánudaga: kl. 13.00 – 15.00
Miðvikudaga: kl. 13.00 – 15.00
Fimmtudaga: kl. 10.00 – 12.00 f.h.
Lokað á föstudögum.
Þeim, sem geta ekki nýtt sér þennan opnunartíma er velkomið að leita til bókavarða: Mánudaga og miðvikudaga kl. 10:00-16:00, þriðjudaga kl. 11:00-16:00 og fimmtudaga kl. 9.30-12.30
Hægt er að fá hljóðbækur frá Blindrabókasafni Íslands.
Lánþegar mega ekki lána öðrum bækurnar, nema með leyfi bókavarðar.
Ekki eru lánaðar nema 5 bækur í senn.
Lánþegar eru heimilismenn á Hrafnistu, fólk í dægradvöl, íbúar í Hleinum, í Hraunvangsblokkum og starfsfólk Hrafnistu.
Útlán eru ókeypis.
Hámarksútlánstími bóka eru 4 vikur. Skammtímalán (nýtt efni) er 2 vikur
Ath. Skilakassi er á bak við símavakt á 1. hæð.
Útsala á bókum er á borðum fyrir framan Bókasafnið. Verð frá 50 kr.
Hittumst á Bókasafninu!
Bókarvísa
Bókin er besti vinur minn.
Bókin okkur töfrum beitir.
Bókin gleður og bætir sinn.
Bókalestur vísdóm veitir.
(Kristín Ína)