23. júlí 2010
Hrakandi sjón.
Með hrakandi sjón hætta margir að takast á við verkefni sem áður voru sjálfsögð svo sem að ganga stiga. Nú er búið að setja merkingar á stiga Hrafnistu í Hafnarfirði. Tillgangur merkinganna er að gera áberandi brúnirnar fyrir þá sem eru orðnir sjónskertir. Merkingarnar eru með hrjúfu yfirborði til að auka skynjun þeirra sem hafa mikla sjónskerðingu en er einnig ákveðin vörn gegn því að renna til í stiganum. Merkingarnar er tilraunaverkefni á vegum iðjuþjálfa. Flestallir hafa tekið þessum merkingum mjög vel og sagt þetta þarft þar sem þau áttu oft erfitt með að sjá hvenær væri þrep eða pallur. Á meðfylgjandi myndum má sjá hvað merkingarnar hafa mikið að segja.
